07.09.26 - 11:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Í fyrsta sinn hjá Þór í sumar - „Hljótum að vera gríðarlega spenntir fyrir framhaldinu"

Sigurmarkinu í gær fagnað.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Sigurmarkinu í gær fagnað.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik
Þór vann í gær sinn sjötta leik á tímabilinu og í fyrsta sinn í sumar tókst liðinu að vinna tvo leiki í röð. Þórsarar fóru til Vestmannaeyja í lok síðasta mánaðar og tók þrjú stigin þar og unnu svo FH-inga í Þorpinu í gær.
Fyrir þessa tvo leiki hafði Þór einungis fengið eitt stig úr leikjunum við liðin í 9.-12. stæti. Framundan hjá Þór eru fimm leikir í neðri hlutanum og er næsti leikur útileikur gegn Val.
Fyrir þessa tvo leiki hafði Þór einungis fengið eitt stig úr leikjunum við liðin í 9.-12. stæti. Framundan hjá Þór eru fimm leikir í neðri hlutanum og er næsti leikur útileikur gegn Val.
Lestu um leikinn: Þór 1 - 0 FH
„Mér líst mjög vel á framhaldið, hrikalega orkumikil frammistaða gegn ÍBV, þá þurftum við að harka út og það var frábær varnarframmistaða. Núna bættum við sóknarleiknum inn í. Við hljótum að vera svolítið spenntir, erum núna búnir að vinna tvo leiki í röð sem við höfum ekki gert áður í sumar og komum í smá flugi inn í síðustu fimm leikina. Við hljótum að vera gríðarlega spenntir fyrir framhaldinu," sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, eftir leikinn í gær.
„Framhaldið horfir virkilega vel við mér, eins og Siggi hefur sagt þá byrjaði úrslitakeppnin hjá okkur fyrir tveimur leikjum síðan. Núna erum við búnir að vinna tvo leiki í röð þannig við erum komnir í þenann úrslitaham, erum klárir og spenntir fyrir næsta leik. Við þurfum að halda áfram að keyra á lið og gera það sem við erum góðir í," sagði Gyrðir Hrafn Guðbrandsson sem átti mjög góðan leik í hjarta varnar Þórs í gær.

Innkastið - KR hatar gras og Blikar bulla
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 22 | +46 | 53 |
| 2 | Fram | 22 | +14 | 45 |
| 3 | KR | 22 | +25 | 44 |
| 4 | Breiðablik | 22 | +2 | 30 |
| 5 | ÍA | 22 | -2 | 30 |
| 6 | Keflavík | 22 | -5 | 28 |
| 7 | Stjarnan | 22 | -8 | 28 |
| 8 | Valur | 22 | -6 | 27 |
| 9 | FH | 22 | -12 | 21 |
| 10 | Þór | 22 | -28 | 21 |
| 11 | KA | 22 | -13 | 20 |
| 12 | ÍBV | 22 | -13 | 18 |