Fotbolti.net
07.10.19 - 16:30
Magnús Már Einarsson

EM treyja frá Ara Frey á uppboði fyrir gott málefni

Ari Freyr Skúlason.

Ari Freyr Skúlason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Treyja sem íslenski landsliðsmaðurinn Ari Freyr Skúlason spilaði í á EM í Frakklandi árið 2016 er þessa dagana á uppboði á netinu.

Um er að ræða uppboð fyrir <a href="http://leschtiscollecteurs.fr/" target="_blank">frönsk góðgerðarsamtök</a> sem voru stofnuð fyrir tveimur árum.
Antony Canonne stofnaði samtökin eftir að faðir hans lést eftir baráttu við krabbamein fyrir tveimur árum. Samtökin eru fyrir fólk sem eru að berjast við krabbamein og aðstandendur þeirra.

Undanfarin ár hafa samtökin boðið upp treyjur frá hinum ýmsu fótboltamönnum og Ari Freyr hefur nú bæst í hópinn.

Treyja Ara verður á uppboði út vikuna og allir geta tekið þátt í uppboðinu.

Smelltu hér til að bjóða í treyjuna
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.