Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 07. október 2019 07:00
Hafliði Breiðfjörð
Liepaja, Lettlandi
Missti af Frakkaleiknum til að njósna um Letta
Icelandair
Ian Jeffs njósnaði um lettneska landsliðið í stað þess að sjá leikinn gegn Frökkum.
Ian Jeffs njósnaði um lettneska landsliðið í stað þess að sjá leikinn gegn Frökkum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ian Jeffs aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins var ekki með liðinu í 4 - 0 tapinu gegn Frökkum á fimmtudagskvöldið því hann fór til Lettlands til að ná að njósna um lettneska liðið.

Ísland mætir Lettum í undankeppni EM 2021 á Daugava leikvanginum í Liepaja á þriðjudagskvöldið.

Íslenski hópurinn mætti eftir langt ferðalag til Liepaja um 19:00 á laugardaginn en þá var Jeffs mættur á undan þeim.

Hann kom hingað á föstudagskvöldið og var því í stúkunni þegar Lettar mættu Slóvakíu í riðlinum klukkan 16:00 á laugardaginn.

Jeffs ætti því að vita hvað ætti að varast hjá lettneska liðinu sem komst yfir í byrjun leiksins en tapaði á endanum 1 - 2. Ekki eina góða byrjun á leik hjá Lettum í riðlinum því þær komust einnig yfir gegn Svíum en töpuðu svo 5 - 1.
Athugasemdir
banner
banner