Bolli Már um Hjamma: Ertu að tala um það helvítis fífl?
„Mér líður bara fáranlega vel. Eins og þú sérð hérna að þá er Elvar uppi á sviði, það er troðullt inni, troðfullt hérna fyrir utan, fólk er að fá sér ölsen og það er bara gleði. Það er uppskeruhátið, við lítum á það þannig, það er uppskeruhátíð. Svo ætlum við að toppa það hérna á eftir með því að vinna þennan helvítis leik. Það eru bara allir glaðir og stoltir, það er tilfinningin.“ sagði Bolli Már Bjarnason, uppistandari og mikill Þróttari, fyrir úrslitaleik Fylkis og Þróttar í umspili Lengjudeildarinnar þegar Fótbolti.net náði á honum tali í Þróttaraheimilinu.