Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 07. nóvember 2019 08:00
Aksentije Milisic
Sjáðu magnaðan sprett Zouma gegn Ajax
Mynd: Getty Images
Chelsea og Ajax áttust við í rosalegum leik í Meistaradeildinni á þriðjudaginn síðasta þegar leikar enduðu 4-4. Ajax hafði komist í 4-1 á Brúnni en allt breyttist þegar Chelsea fékk vítaspyrnu og tveir leikmenn Ajax reknir í sturtu.

Kurt Zouma, miðvörður Chelsea, vakti athygli fyrir magnaðan sprett í síðari hálfleiknum. Hann vann boltann á miðjum eigin vallarhelmingi og setti í fluggírinn.

Hann lék á hvern leikmann Ajax á fætur öðrum áður en hann sólaði Daley Blind með tvöföldum skærum. Því miður fyrir hann þá fór skotið hins vegar langt yfir markið.

Frank Lampard, stjóri Chelsea, hafði gaman að þessu og gat ekki annað en brosað. Þetta skemmtilega atvik má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner