Fotbolti.net
07.12.18 - 14:30
Elvar Geir Magnússon

Óvænt yfirlýsing: Mourinho er ekki á förum

Fer ekki fet.

Fer ekki fet.

Canon

Mynd: Getty Images

Jorge Mendes, umboðsmaður Jose Mourinho, er ekki vanur því að senda frá sér yfirlýsingar og það kom því á óvart þegar hann sendi frá sér eina slíka áðan.

„Það hefur verið í gangi orðrómur um að Jose Mourinho sé á förum frá Manchester United. Það er algjörlega rangt. Jose er mjög ánægður hjá félaginu og félagið er ánægt með hann," segir í yfirlýsingunni.
„Hann er með langtímasamning við Manchester United og er algjörlega tryggur félaginu í að byggja liðið upp."

Manchester United er án sigurs í síðustu fjórum leikjum átta stigum frá Meistaradeildarsæti og átján stigum frá erkifjendunum í Manchester City sem er á toppnum.

The Sun greindi frá því í dag að United vilji fá Mauricio Pochettino frá Tottenham.
Jorge Mendes.

Jorge Mendes.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.