Fotbolti.net
08.02.26 - 20:13
Brynjar Ingi Erluson

Gummi Magg í Njarðvík (Staðfest)

Gummi Magg í Njarðvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Njarðvík

Njarðvík hefur samið við framherjann reynslumikla Guðmund Magnússon en hann gerir samning út þetta ár.
Guðmundur, sem er fæddur 1991, er uppalinn í Fram og er einn leikja- og markahæsti leikmaður í sögu félagsins.

Hann lék með Breiðabliki á láni frá Fram seinni hluta síðasta tímabils þar sem hann skoraði eitt mark. Hann kvaddi síðan Fram í byrjun ársins.

Auk þess hefur hann spilað fyrir Víkings Ólafsvík, HK, Keflavík, ÍBV og Grindavík. Hann á alls 415 KSÍ leiki og skorað 131 mark.

Öflug viðbót við hópinn hjá Njarðvík sem er að byggja hóp sem er reiðubúinn til að berjast um Lengjudeildartitilinn á komandi tímabili.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.