Fotbolti.net
08.02.26 - 18:09
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu stórkostlegt aukaspyrnumark Szoboszlai gegn Man City

Dominik Szoboszlai er að eiga stórkostlegt tímabil með Liverpool

Dominik Szoboszlai er að eiga stórkostlegt tímabil með Liverpool

Canon

Mynd: EPA

Dominik Szoboszlai hefur unnið hug og hjörtu stuðningsmanna Liverpool á þessari leiktíð, en hann hefur án efa verið þeirra besti leikmaður á tímabilinu. Hann skoraði enn eitt aukaspyrnumarkið er hann kom Liverpool í 1-0 gegn Manchester City á Anfield nú rétt í þessu.
Man City var með yfirhöndina í fyrri hálfleiknum og í raun ótrúlegt að það hafi verið markalaust þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Liverpool tók við sér í þeim síðari og átti nokkrar tilraunir áður en liðið fékk aukaspyrnu um 30 metrum frá marki.

Szoboszlai, sem hefur svakalegur á tímabilinu, þrumaði boltanum með sínum sérstaka stíl þannig hann fór í boga framhjá varnarveggnum og í stöng og inn. Gianluigi Donnarumma hreyfðist varla á línunni og Liverpool komið yfir en þetta mark má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu aukaspyrnumarkið hjá Szoboszlai hér
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.