Fotbolti.net
08.02.26 - 16:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Slot: Vorum yfirspilaðir á Etihad

Slot: Vorum yfirspilaðir á Etihad
Canon

Mynd: EPA

Liverpool og Man City hafa verið að keppast um Englandsmeistaratitilinn undanfarin ár en tímabilið hjá Liverpool hefur verið mikil vonbrigði.

Leikur liðanna á Anfield er nýhafinn en Liverpool er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti á meðan Man City er í 2. sæti, 9 stigum á eftir toppliði Arsenal.
Liverpool tapaði 3-0 á Etihad í fyrri leik liðanna en Arne Slot er bjartsýnn fyrir leik dagsins.

„Það er mikil hvatning í hópnum fyrir daginn, í fyrsta lagi út af því að við erum að spila fyrir framan stuðningsmennina okkar, í öðru lagi því við þurfum á stigunum að halda. Í þriðja lagi því við vorum yfirspilaðir stóran hluta fyrri hálfleiksins á Etihad, við vorum þó óheppnir með dómaraákvarðanir," sagði Slot.

„Sama hvað gerist í dag þá tel ég að við höfum tekið mörg skref fram á við. Aðallega án bolta, leikmennirnir eru betri að spila í þessu prógrammi. Við erum aðeins með 14 útileikmenn til taks svo þeir sömu þurfa að spila. Mestu framfarirnar sem ég sé eru að leikmenn eru klárir í úrvalsdeildina og Meistaradeildina."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.