Fotbolti.net
08.05.26 - 16:30
Kári Snorrason

Steindi og Dóri DNA framan á treyjum Hvíta Riddarans

Vinirnir ánægðir.

Vinirnir ánægðir.

Canon

Mynd: Hvíti Riddarinn

Mosfellingarnir tveir Steindi Jr. og Dóri DNA prýða nýja treyju Hvíta Riddarans sem félagið kynnti fyrr í dag.

Í tilkynningu félagsins segir að treyjan hafi verið hönnuð í samstarfi með Steinda og Dóra ásamt styrktaraðilum.

Hvíti Riddarinn leikur í 2. deild eftir að hafa farið upp úr 3. deild í fyrra. Liðið gerði 3-3 jafntefli við Víking Ólafsvík í fyrstu umferð.

Um komandi helgi fær Hvíti Riddarinn Selfyssinga í heimsókn í Mosfellsbæinn þar sem nýju treyjurnar verða frumsýndar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.