Brasilíska stórstjarnan Neymar er á góðum batavegi að sögn brasilíska fótboltasambandsins.
Neymar er að glíma við kálfameiðsli en hann fór í skoðun í dag og samkvæmt tilkynningu er þróunin góð.
Neymar er að glíma við kálfameiðsli en hann fór í skoðun í dag og samkvæmt tilkynningu er þróunin góð.
Neymar, sem er 34 ára, hefur misst af síðustu tveimur undirbúningsleikjum Brasilíu; 6-2 sigrinum gegn Panama og 2-1 sigrinum gegn Egyptalandi.
Neymar er í kapphlaupi við tímann til að vera orðinn klár fyrir fyrsta leik Brasilíu á HM, sem verður gegn Marokkó þann 13. júní.
Neymar, sem spilar fyrir Santos, hefur verið mikið á meiðslalistanum undanfarin ár. Hann hefur skorað 79 mörk í 128 leikjum fyrir Brasilíu og er á leið á sitt fjórða heimsmeistaramót.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!



