Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson og Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska liðsins, sátu fyrir svörum á fjölmiðlafundi á Laugardalsvelli í dag fyrir stórleikinn gegn ríkjandi heimsmeistarum Spánar á morgun, þriðjudag. Íslenska liðið mætir fullt sjálfstrausts eftir dýrmætan sigur gegn Úkraínu en ljóst er að verkefnið gegn stjörnum prýddu liði Spánar verður ærið.
Góðu fréttirnar fyrir íslenska liðið eru þær að allir leikmenn liðsins eru klárar fyrir morgundaginn. „Það eru allar klárar,“ staðfesti Steini á fundinum.
Þá var tilkynnt að rúmlega 2.000 miðar væru þegar seldir en búist er við góðri áframhaldandi miðasölu fram að leik.
Ísland kemur pressulaust inn í leikinn eftir sigurinn í síðasta leik, en Glódís segir að liðið ætli að finna sama karakter og neista og sást gegn Englandi í síðasta heimaleik.
„Auðvitað vorum við gríðarlega sáttar sérstaklega með seinni hálfleikinn á móti Englandi hérna heima. Það var virkilega gaman að það geislaði af okkur sjálfstraust og við fórum svolítið bara í svona, fokk it gír, sem að virkaði vel í þeim leik,“ sagði fyrirliðinn Glódís Perla.
Hún bendir þó á að Spánverjar bjóði upp á allt aðra andstæðu en enska liðið.
„Spánarliðið er líka aðeins öðruvísi en enska liðið á margan hátt, þeim líður mjög vel undir pressu og finnst gaman að spila undir pressu. Þannig að við þurfum að vera ennþá betri. Við skuldum Englandi ekki neitt, við erum að fara í þennan leik til að reyna að vinna hann auðvitað.“
Aðspurður um veikleika heimsmeistaranna og hvernig íslenska uppleggið yrði, lýsti Steini landsliðsþjálfari gæðum Spánverja á skemmtilegan hátt.
„Í leiknum gegn Englandi á föstudaginn þá var skipting á 70. mínútu þar sem út af fór leikmaður sem var Ballon d‘Or þrjú ár í röð og inn á kemur leikmaður sem er búinn að vera Ballon d‘Or þrjú ár í röð,“ sagði Steini og vísar þar til ótrúlegrar breiddar spænska liðsins.
„Við erum vonandi búin að finna einhverjar leiðir til þess að skapa, skora og svo að stöðva þær í sínu stutta spili, possession. Við gerum okkur alveg grein fyrir því að við munum vera minna með boltann og andlega búnar að sætta okkur við það.“
Steini segist vilja sjá íslenska liðið sýna framfarir og þora að taka áhættu á morgun.
„Ég vil bara sjá frammistöðu, séu með hugrekki, séu að þora að halda í boltann á réttum stað á réttum tíma og framkvæmum það. Verjumst vel og vinnum stöðurnar einn á einn, eins oft og hægt er. Framfarir í frammistöðu.“



