Fotbolti.net
08.07.25 - 15:12
Elvar Geir Magnússon

Allt bendir til að Jota hafi keyrt á ólöglega miklum hraða

Diogo Jota.

Diogo Jota.

Canon

Mynd: EPA

Spænska lögreglan hefur gefið það út að allt hafi bent til þess að Diogo Jota hafi ekið of hratt þegar hann og bróðir hans létust í bílslysi í síðustu viku.

Rannsókn á slysinu er enn í gangi en lögreglan segir allt benda til þess að Jota hafi verið á ólöglegum hraða þegar dekk sprakk á Lamborghini bifreið hans með þeim afleiðingum að ökutækið endaði utan vegar og varð alelda.
Leikmenn Liverpool mæta til æfinga í skugga andláts Diogo Jota
TENGT EFNI

Leikmenn Liverpool mæta til æfinga í skugga andláts Diogo Jota

Lögreglan hafði ekki gefið það út hvort Jota eða bróðir hans, Andre Silva, hafi verið undir stýri fyrr en í dag og virðist Jota hafa keyrt bílinn.

„Allt bendir til þess að ökumaður ökutækisins hafi ekið hraðar en leyfilegur hraði. Allar prófanir sem gerðar hafa verið benda til þess að ökumaður ökutækisins hafi verið Diogo Jota," segir í yfirlýsingu lögreglunnar.

Jota var leikmaður Liverpool og portúgalska landsliðsins og var á leið til borgarinnar Santander til að taka ferju til Englands. Honum hafði verið ráðlagt að fljúga ekki eftir nýlega lungnaaðgerð. Útför bræðranna fór fram í Portúgal á laugardag.

Heimild: Guardian

Allt bendir til að Jota hafi keyrt á ólöglega miklum hraða
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.