Juventus 0 - 0 Inter (samanlagt 2-1)
Ítalíumeistarar Juventus eru komnir í úrslitaleikinn ítalska bikarsins eftir undanúrslitaeinvígi við Inter.
Juventus vann fyrri leikinn á útivelli 2-1 og var því í góðri stöðu fyrir leikinn í kvöld.
Ítölsku meistararnir voru skipulagðir og náðu að halda leiknum markalausum. Inter voru sterkari aðilinn en fundu ekki lausnir og lokatölur 0-0.
Juventus mun mæta annað hvort Atalanta eða Napoli í úrslitaleiknum. Það kemur í ljós á morgun hvort liðið það verður. Juventus tapaði í úrslitaleiknum í fyrra fyrir Napoli.
Athugasemdir