Fotbolti.net
09.02.26 - 22:27
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Middlesbrough tók toppsætið af Coventry

Tommy Conway hefur skorað fjögur mörk í síðustu fjórum leikjum

Tommy Conway hefur skorað fjögur mörk í síðustu fjórum leikjum

Canon

Mynd: Middlesbrough

Sheffield Utd 1 - 2 Middlesbrough
0-1 Tommy Conway ('19 )
0-2 Riley McGree ('45 )
1-2 Patrick Bamford ('73 )
Rautt spjald: Joe Rothwell, Sheffield Utd ('80)
Middlesbrough er komið á toppinn í ensku B-deildinni eftir að hafa unnið 2-1 útisigur á Sheffield United á Bramall Lane í kvöld.

Boro byrjaði tímabilið frábærlega og var á toppnum eftir átta umferðir, en misstu aðeins dampinn eftir það.

Coventry kom sér í góða stöðu og komið með tíu stiga forystu, en hefur fatast flugið undanfarnar vikur. Coventry tapaði stigum um helgina og fékk Boro tækifæri til að endurheimta toppsætið og nýtti það.

Tommy Conway skoraði á 19. mínútu með skoti í vinstra hornið og bætti Riley McGree við öðru undir lok hálfleiksins.

Patrick Bamford kom Sheffield aftur inn í leikinn með marki á 73. mínútu, en Joe Rothwell drap alla von Sheffield um að koma til baka er hann sá rauða spjaldið tíu mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma.

Sigurinn kom Boro aftur á toppinn í fyrsta sinn síðan 17. október en liðið er með 61 stig, tveimur stigum meira en Coventry sem er í öðru sæti. Chris Wilder og lærisveinar hans í Sheffield eru í 16. sæti með 39 stig.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough12+1025
2Swansea12+323
3West Ham12+1722
4Wolves12+421
5West Brom12+321
6Southampton12+1220
7Birmingham12+820
8QPR12+820
9Stoke City12+220
10Blackburn12+318
11Portsmouth12+118
12Sheffield Utd12+116
13Millwall12-115
14Bristol City12-315
15Lincoln City12-715
16Cardiff City12+214
17Wrexham12-314
18Bolton12-714
19Charlton Athletic12-714
20Norwich12-212
21Watford12-1011
22Burnley12-88
23Derby County12-117
24Preston NE12-155
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.