Fotbolti.net
09.02.26 - 19:21
Brynjar Ingi Erluson

Jóhann Berg riftir við Al Dhafra (Staðfest)

Jóhann Berg er farinn

Jóhann Berg er farinn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenski landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson hefur rift samningi sínum við Al Dhafra í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu og Jóhanni á Instagram.
Jóhann Berg kom til Al Dhafra frá Al Orubah í Sádi-Arabíu síðasta sumar.

Þessi 35 ára gamli leikmaður hefur nú fengið samningi sínum rift við félagið og óskar því góðs gengis. Hann lék 12 leiki og kom að fjórum mörkum á tímabilinu.

„Ég óska Al Dhafra alls hins besta á þessu tímabili og hlakka til að takast á við nýjar áskoranir,“ skrifaði Jóhann Berg, en óvíst er hver næsti áfangastaður hans verður.

Jóhann er einn af ástsælustu leikmönnum í sögu íslenska boltans og fimmti landsleikjahæsti með 101 leik, aðeins tólf leikjum frá því að jafna met Birkis Bjarnasonar.

Hann fór í gegnum yngri flokkana hjá Breiðablik ásamt því að spila með unglingaliðum Chelsea og Fulham. Hann sprakk síðan út með meistaraflokki Breiðabliks árið 2008 og fór í kjölfarið til AZ Alkmaar í Hollandi.

Þaðan fór hann til Charlton þar sem hann lék tvö tímabil áður en hann hélt til Burnley þar sem hann lék alls tíu tímabil og spilaði yfir 200 leiki.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.