Fotbolti.net
09.02.26 - 14:00
Kári Snorrason

Rooney: Tottenham er í fallbaráttu

Thomas Frank tók við Tottenham fyrir tímabil.

Thomas Frank tók við Tottenham fyrir tímabil.

Canon

Mynd: EPA

Wayne Rooney segir horfurnar dökkar hjá Tottenham og telur hann liðið vera komið í fallbaráttu.

Tottenham tapaði fyrir Manchester United á laugardaginn og er nú án sigurs í síðustu sjö deildarleikjum. Liðið situr í 15. sæti deildarinnar og er sex stigum frá fallsæti.
„Maður þarf að segja að þeir séu í fallbaráttu eins og staðan er núna. Það er ekki hægt að halda öðru fram miðað við stöðuna sem þeir eru í. Ég held að þeir séu klárlega farnir að líta aftur fyrir sig,“ sagði Rooney í The Wayne Rooney Show í gær.

Rooney segist þó hafa samúð með Thomas Frank, stjóra Tottenham, og segir hann frábæran þjálfara.

„Mér líður illa fyrir Thomas Frank því hann lítur út fyrir að vera orðinn mjög þreyttur, eins og hann hafi elst um tíu ár. Þetta er það sem Tottenham starfið hefur gert við hann á stuttum tíma.

Ég vona að félagið haldi í hann því hann er frábær þjálfari, en ég held þó að það verði mjög erfitt fyrir þá að halda í hann.“

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.