Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 09. maí 2021 11:45
Aksentije Milisic
Sancho: Veit ekki hvort ég fari frá Dortmund
Mynd: Getty Images
Jadon Sancho, leikmaður Dortmund, segir að hann sé ekki viss hvort hann verði áfram hjá félaginu á næstu leiktíð.

Sancho var frábær í gær en hann skoraði tvö mörk og tryggði Dortmund gífurlega mikilvæga sigur á RB Leipzig. Dortmund er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti.

Sancho hefur lengið verið orðaður við endurkomu til Englands en allt stefndi í það að hann færi til Manchester United fyrir þessa leiktíð. Það gerðist þó ekki og nú eru sögusagnirnar aftur komnar á kreik.

„Mun ég yfirgefa félagið? Ég veit ekki hvað gerist í framtíðinni," sagði Sancho.

„Þessa stundina er ég ánægður hér. Ég elska stuðningsmennina, klúbbinn og liðið. Þeir gáfu mér mitt fyrsta tækifæri í atvinnumennskunni."

Ásamt Man Utd þá hafa Liverpool og Chelsea einnig áhuga á að fá Jadon Sancho í sumar.

Athugasemdir
banner
banner