Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. júní 2026 23:46
Ívan Guðjón Baldursson
5. deild: Smári óstöðvandi - Stokkseyri skoraði fimm
Mynd: Boreal
Mynd: Stokkseyri
Það fóru fimm leikir fram í 5. deildinni fyrr í kvöld og voru 23 mörk skoruð.

Smári og Skautafélag Reykjavíkur unnu sína leiki í A-riðli. Smári er áfram með fullt hús stiga eftir sigur á útivelli gegn Uppsveitum.

Lokatölur urðu 1-4 fyrir Smára en sigurinn var tæpur, þar sem staðan var jöfn 1-1 allt þar til á 85. mínútu. Uppsveitir voru með fullt hús stiga en sitja eftir með 9 stig eftir 4 umferðir eftir þetta tap.

Skautafélagið fór þá létt með Afríku og situr í öðru sæti riðilsins með 10 stig eftir 5 umferðir.

Í B-riðli vann Stokkseyri flottan 5-1 sigur á heimavelli gegn botnliði KB og er liðið í öðru sæti með 10 stig eftir 5 umferðir, tveimur stigum á eftir Hömrunum.

Léttir vann þá sinn annan leik á deildartímabilinu þegar liðið tók á móti Kríu og skildu KM og BF 108 jöfn í neðri hlutanum.

A-riðill:
SR 4 - 0 Afríka
1-0 Toussaint Hrafn X. T. Maillard ('25 )
2-0 Guðmundur Ísak Bóasson ('37 )
3-0 Hrafn Ingi Jóhannsson ('74, víti)
4-0 Birkir Björnsson ('86 )

Uppsveitir 1 - 4 Smári
0-1 Alexander Fannberg Gunnarsson ('14)
1-1 Karol Dragowski ('45)
1-2 Reynir Thelmuson ('85)
1-3 Alexander Fannberg Gunnarsson ('92)
1-4 Gunnar Breki Mýrdal Gunnarsson ('94)

B-riðill:
Stokkseyri 5 - 1 KB
1-0 Marteinn Maríus Marinósson ('9 )
2-0 Arilíus Óskarsson ('13, víti)
3-0 Tryggvi Sigurberg Traustason ('23 )
4-0 Ingvi Rafn Óskarsson ('38 )
4-1 Aakash Gurung ('56, víti)
5-1 Hafþór Berg Ríkarðsson ('77 )

KM 2 - 2 BF 108
0-1 Pálmi Nökkvason ('14 )
1-1 Karabo Mgiba ('24 )
2-1 Karabo Mgiba ('51 )
2-2 Tómas Atli Björnsson ('65 )

Léttir 3 - 1 Kría
0-1 Kristófer Melsted ('17 )
1-1 Sævar Breki Snorrason ('21 )
2-1 Baldur Páll Sævarsson ('49 )
3-1 Kristófer Páll Lúðvíksson ('83 )
Slapp
banner
banner