Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   þri 09. júlí 2019 18:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu þrennu og körfuboltatakta Arnórs Sigurðssonar
Arnór Sigurðsson skoraði þrennu í æfingaleik með CSKA gegn Rubin Kazan í dag.

Arnór skoraði fyrsta og eina mark fyrri hálfleiksins á 14. mínútu. Á 79. mínútu kom hann CSKA í 2-0 og í næstu sókn fulkomnaði hann þrennu sína.

Íslendingavaktin er dugleg að fylgjast með íslenskum leikmönnum og birtir reglulega myndbönd úr leikjum þeirra. Í dag birti vaktin myndband af þrennu Arnórs á Twitter. Þrennnuna má sjá hér:



Það er ekki allt af Arnóri en opinber Twittersíða Knattspyrnudeildar CSKA hengdi í dag Arnór við færslu hjá sér og sést þar Arnór sýna skothæfni sína með körfubolta. Arnór hitti átta sinnum í röð ofan í körfuna og náði hann að heilla áhorfendur sem voru í kringum hann.

Þetta skemmtilega myndband má sjá hér:


Athugasemdir
banner