Arsenal líklegt til að fá Eze - Arsenal hefur enn ekki náð samkomulagi um Gyökeres - Napoli vill Nunez
   mið 09. júlí 2025 14:31
Elvar Geir Magnússon
Liverpool spilar sinn fyrsta leik eftir andlát Jota
Diogo Jota lést í bílslysi í síðustu viku.
Diogo Jota lést í bílslysi í síðustu viku.
Mynd: EPA
Liverpool mun spila sinn fyrsta leik eftir fráfall Diogo Jota á sunnudaginn.

Leikurinn er æfingaleikur við Preston North End og fer fram á Deepdale klukkan 15:00 á sunnudaginn. Þetta verður fyrsti leikur Liverpool frá því að Jota lést ásamt bróður sínum André Silva í bílslysi á Spáni í síðustu viku.

Liverpool kom aftur til æfinga í gær og ræddu leikmenn og starfsfólk um hvort aflýsa ætti leiknum en nú er ljóst að hann mun fara fram.

Búist er við að Preston muni standa fyrir minningarathöfn á leiknum í samráði við Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner