Fotbolti.net
09.10.19 - 12:00
Brynjar Ingi Erluson

Dembele ekki með í El Clasico

Ousmane Dembele

Ousmane Dembele

Canon

Mynd: Getty Images

Ousmane Dembele, leikmaður Barcelona á Spáni, verður ekki með liðinu gegn Real Madrid eftir landsleikjahlé.
Dembele var rekinn af velli í 4-0 sigri Barcelona á Sevilla á dögunum en hann sendur í sturtu fyrir að mótmæla.

Ronald Araujo, varnarmaður Barcelona, fékk rautt spjald og var Dembele ósáttur við dóminn og sagði við dómarann að hann væri afar slakur.

Frakkinn er nú á leið í tveggja leikja bann sem þýðir að hann missir af leik Börsunga gegn Real Madrid.

Real Madrid er í toppsætinu með 18 stig en Barcelona fylgir fast á eftir í 2. sæti með 16 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.