Fotbolti.net
04.10.26 - 13:43
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Besti markvörður Seríu A er án landsliðs

Mile Svilar

Mile Svilar

Canon

Mynd: EPA

Landsleikjahléið fer í taugarnar á mörgum en fyrir leikmennina er það tækifæri til að spila fyrir land og þjóð. Það eru þó ekki allir sem fá það tækifæri.
Mile Svilar, markvörður Roma, hefur verið valinn besti markvörður ítölsku deildarinnar síðustu tvö tímabil.

Hann átti stóran þátt í að Roma endaði í þriðja sæti á síðustu leiktíð og tryggði sér sæti í Meistaradeildinni á ný. Hann hefur líka verið magnaður í upphafi þessa tímabils og Roma situr á toppnum.

Þrátt fyrir það spilar Svilar ekki með neinu landsliði. Hann er fæddur og uppalinn í Belgíu og lék með yngri landsliðum þjóðarinnar áður en hann ákvað að spila fyrir Serbíu, en þangað á hann ættir að rekja.

Faðir hans, Ratko, sem lék á sínum tíma með júgóslavneska landsliðinu, ráðlagði honum að velja Serbíu árið 2021. Svilar fór að ráðum hans og lék vináttulandsleik gegn Katar en sá eini leikur hefur haft mikil áhrif á landsliðsferil hans.

Svilar skipti síðar um skoðun og vildi aftur spila fyrir Belgíu. FIFA hafnaði því og í kjölfarið vildu Serbar ekki lengur velja hann í landsliðið.

Vandinn er sá að Svilar hafði þegar skipt frá Belgíu yfir til Serbíu. Þótt leikurinn gegn Katar hafi verið vináttulandsleikur kom þátttaka hans í honum í veg fyrir að hann gæti skipt til baka.

Þarna liggur munurinn á hans máli og máli Brahim Diaz, sem fékk að skipta frá Spáni yfir til Marokkó. Diaz hafði einnig spilað vináttulandsleik, gegn Litháen þar sem hann skoraði, en var að skipta um landslið í fyrsta sinn.

Lögfræðingar Svilar vinna enn að því að finna lausn en litlar líkur eru taldar á að hann fái að spila fyrir Belgíu.
Svilar sér eftir því að hafa skipt yfir í Serbíu

Svilar sér eftir því að hafa skipt yfir í Serbíu

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.