Tammy Abraham, framherji Chelsea á Englandi, segir að Virgil van Dijk, varnarmaður Liverpool, sé besti varnarmaður sem hann hefur mætt á ferlinum.
Abraham hefur verið að gera góða hluti hjá Chelsea á þessu tímabili eftir að hafa heillað hjá Aston Villa og Bristol CIty í ensku B-deildinni en hann er með 8 mörk í 8 deildarleikjum.
Hann ræddi um besta varnarmann sem hann hefur spilað gegn og segir hann að Virgil van Dijk sé sá erfiðasti sem hann hefur spilað gegn.
Van Dijk hefur verið frábær í liði Liverpool og var valinn besti leikmaður ársins af UEFA. Hann vann Meistaradeildina með Liverpool í júní og gjörbreytt varnarleik liðsins.
„Hann er skepna. Hann er bara alltof góður í því sem hann gerir. Hann er með reynslu og ég reyni að gera eitthvað, nota öll þau brögð sem ég get boðið upp á en skilningur hans á leiknum er á einhverju öðru plani," sagði Abraham um Van Dijk.
Athugasemdir