Fotbolti.net
09.12.19 - 13:18
Elvar Geir Magnússon

Ágreiningur innan FH

Kaplakriki, heimavöllur FH.

Kaplakriki, heimavöllur FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fimleikafélag Hafnarfjarðar heldur áfram að vera í umræðunni vegna fjárhagsmála. Reglulega er fjallað um að félagið sé ekki að standa við launagreiðslur til leikmanna.

Fréttablaðið <a href="https://www.frettabladid.is/sport/barna-og-unglingarad-fh-vildi-ekki-lana-peninginn-til-meistaraflokks/" target="_blank">fjallar um það í dag</a> að Barna- og unglingaráð (BUR) hafi á dögunum sagt af sér eftir að eftir að stjórn knattspyrnudeildar félagsins tók pening af reikningum sem BUR vildi ekki lána.
„Þetta var lán, það var ekki verið að taka neina peninga. En þau sem voru í BUR vildu ekki lána peninginn. En það er kominn annar tónn í stjórn BUR núna," sagði Viðar Halldórsson, formaður FH, við Benedikt Bóas Hinriksson á Fréttablaðinu.

Verið er að funda um ágreininginn en í yfirlýsingu sem send var til foreldra iðkenda í FH er sagt að allir séu staðráðnir í því að tryggja að starfið fyrir iðkendur, foreldra og þjálfara haldist óbreytt.

Heimild: Fréttablaðið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.