Liverpool og City fylgjast með Diomande - Disasi á förum - Panichelli til Englands - Newcastle gæti fengið einn ódýrt
   þri 09. desember 2025 15:00
Kári Snorrason
Jóladagatalið: Byr undir báða vængi
Atli hefur snúið aftur til Þórs eftir þrettán ára fjarveru.
Atli hefur snúið aftur til Þórs eftir þrettán ára fjarveru.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Í tilefni þess að Atli Sigurjónsson er mættur aftur til Þórs er vel við hæfi að líta til baka á eftirminnilegt viðtal þegar hann var leikmaður Þórs fyrir fjórtán árum.

Þórsarar höfðu náð í sinn fyrsta sigur í Pepsi-deildinni þetta tímabilið og var Atli Sigurjónsson fenginn í viðtal að leik loknum.

Undir lok viðtalsins var Atli spurður hvort að sigurinn gefi Þórsurum ekki byr undir báða vængi svaraði Atli hugsi:

„Byr undir hvað?“ Og skildi ekki orðatiltækið góða.

Rúmum mánuði eftir viðtalið sem um ræðir mætti Atli aftur í viðtal eftir sigurleik, þar sem hann gerði grín að ummælunum og sagði: „Þetta gefur okkur byr undir alla vængina.“

Jóladagatalið:
1. desember - Ólafur Karl í kleinu
2. desember - Gylfi lét boltum rigna yfir Jóa Berg
3. desember - Cillessen rauk úr viðtali eftir tap á Laugardalsvelli
4. desember - Langbest að fá heyrnalausa menn að dæma
5. desember - Lárus Orri lét stjórnarmenn heyra það - „Vilja eignast vini uppi á KA svæði
6. desember - Hægðir og lægðir
7. desember - Misskildi spurningu frettamanns - „Setti hársprey og svona“
8. desember - Hvernig er að ganga í Feneyjum?


Athugasemdir
banner
banner
banner