Fotbolti.net
10.02.26 - 21:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Aron Einar og félagar niðurlægðir

Aron Einar Gunnarsson.

Aron Einar Gunnarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Al-Gharafa sem mætti Al-Ittihad frá Sádi-Arabíu í Meistaradeildinni í Asíu í dag.

Það er óhætt að segja að það hafi ekki farið vel hjá Aroni og félögum því leikurinn endaði með 7-0 sigri Al-Ittihad.
Houssem Aouar, fyrrum leikmaður Lyon og Roma, gerði þrennu fyrir Al-Ittihad í leiknum.

Aron Einar spilaði allan leikinn og átti erfitt uppdráttar eins og allir liðsfélagar sínir.

Al-Gharafa hefur spilað sjö leiki í Meistaradeildinni á þessu tímabili og unnið tvo þeirra, en sjö þeirra hafa tapast. Al-Ittihad hefur tapað þremur og unnið fjóra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.