Það vakti athygli þegar Arnar Gunnlaugsson valdi landsliðshópinn fyrir vináttuleikinn gegn Mexíkó að enginn leikmaður Vals, sem endaði í 2. sæti Bestu deildarinnar í fyrra, skildi vera í hópnum.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var samtal um nokkra leikmenn Vals, en þeir eru nokkrir hverjir að snúa til baka eftir meiðsli.
Landsliðsþjálfarinn ræddi við fyrirliða Vals, Hólmar Örn Eyjólfsson. Þetta staðfestir varnarmaðurinn í samtali við Fótbolta.net.

„Arnar talaði við mig. Ég ákvað að standa við ákvörðunina sem ég tók fyrir fimm árum og halda landsliðsskónum á hillunni," segir Hólmar.
Hólmar er fæddur 1990 og á að baki 19 A-landsleiki. Hann lék síðast með landsliðinu í nóvember 2020 í Þjóðadeildinni og var svo í fyrsta hópi Arnars Þórs Viðarssonar í undankeppni HM en kom ekki við sögu í mars 2021.
Það hefur ekki kitlað að spila aftur með landsliðinu?
„Jú, það gerði það. Arnar er að gera spennandi hluti með liðið. En þessum kafla hjá mér er lokið og ég ákvað að halda því þannig," segir Hólmar sem er í æfingaferð með Völsurum á Tenerife um þessar mundir.
Þeir Guðmundur Kristjánsson, Damir Muminovic og Hans Viktor Guðmundsson eru miðverðirnir í landsliðshópnum.
Athugasemdir