Fotbolti.net
10.02.26 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Stuðningsmenn hafa snúist gegn Parker - „Þú verður rekinn á morgun!“

Scott Parker telur sig enn vera rétta manninn fyrir Burnley.

Scott Parker telur sig enn vera rétta manninn fyrir Burnley.

Canon

Mynd: EPA

„Þú verður rekinn á morgun“ og „Við viljum Parker burt“ var hrópað af stuðningsmönnum Burnley eftir 0-2 tap gegn West Ham síðasta laugardag.

Scott Parker, stjóri Burnley, var hetja í augum stuðningsmanna eftir að hafa komið liðinu upp í úrvalsdeildina en liðið er þar í 19. sæti sem stendur, ellefu stigum frá öruggu sæti.

Stuðningsmennirnir hafa snúist gegn Parker en hann telur sig enn hafa traust frá eigendunum.
Kristján Óli spáir í 26. umferð ensku úrvalsdeildarinnar
TENGT EFNI

Kristján Óli spáir í 26. umferð ensku úrvalsdeildarinnar

Með fullan stuðning eigenda félagsins
„Samband mitt við eigendurna er alveg skírt. Það er mjög traust og opinskátt. Ég er með fullan stuðning. Það hefur ekkert verið sagt við mig sem segir mér að staða mín sé ekki traust," sagði Parker á fréttamannafundi í dag.

„Það er eðlilegt í nútímafótbolta að þú sért hetja en á nokkrum mánuðum breytist þú í skúrk. En frá hlið eigenda og stjórn félagsins hefur ekkert breyst og þeir standa við bakið á mér."

„Um leið og mér finnst ég ekki vera rétti maðurinn verð ég sá fyrsti sem tek í höndina á einhverjum og kveð. Það verður ekki erfitt. Ég ber sterkar tilfinningar til félagsins og leikmanna þess og vil þeim allt hið besta."

Burnley heimsækir Crystal Palace annað kvöld.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Man City1+13
7Ipswich Town1+13
8Leeds1+13
9Chelsea1+13
10Liverpool101
11Newcastle101
12Fulham1-10
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18West Ham38-1939
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.