Fotbolti.net
10.02.26 - 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Umboðsmaður Salah ræðir við félag í Sádi-Arabíu

Mohamed Salah.

Mohamed Salah.

Canon

Mynd: EPA

Umboðsmaður Mohamed Salah er byrjaður að ræða við Al-Ittihad í Sádi-Arabíu.

Frá þessu greinir franski fjölmiðillinn FootMercato.
Salah hefur lengi verið orðaður við Sádi-Arabíu en það er talsvert líklegt að það gerist næsta sumar. Salah lenti upp á kant við Arne Slot, stjóra Liverpool, í desember en þeir náðu að slíðra sverðin eftir það.

Það er þó líklegt að Salah fari í sumar og samkvæmt FootMercato eru sterkar vísbendingar um það því Egyptinn hefur leyft umboðsmanni sínum að ræða við Al-Ittihad; hann sé talsvert opnari fyrir því núna að fara til Sádi-Arabíu.

Salah er með samning við Liverpool til 2027.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.