Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 10. júní 2026 18:23
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Darmian íhugar að leggja skóna á hilluna
Mynd: EPA
Matteo Darmian, bakvörður Inter, íhugar að leggja skóna á hilluna en hann mun ekki framlengja samning sinn við ítalska félagið.

Darmian er 36 ára gamall en hann er þekktastur fyrir tímann sinn hjá Man Utd frá 2015-2019.

Sky Sports á Ítalíu greinir frá því að Monza, Venezia, Udinese og Sassuolo hafi áhuga á honum.

Hann íhugar hins vegar að leggja skóna á hilluna og ef af því verður hefur Inter boðið honum starf innan félagsins.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner