Heimsmeistaramótið eftirvænta hefst á morgun þegar Mexíkó tekur á móti Suður-Afríku í opnunarleiknum.
Eins og greint hefur verið frá verður allt mótið sýnt í beinni útsendingu á RÚV en það verður ekkert vandamál fyrir íslenska ferðalanga að horfa á leiki þegar þeir eru staddir á erlendri grundu.
Annars vegar heldur RÚV því fram að Íslendingar sem staddir eru erlendis geti horft á heimsmeistaramótið í gegnum smáforrit RÚV sem virkar í hinum ýmsu snjalltækjum. Landsmönnum nægir að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum til að horfa vandræðalaust á leiki mótsins.
Þar að auki hefur Árni Torfason útbúið vefsíðu sem sýnir hvar leikir á HM eru sýndir í öðrum löndum. Þetta getur verið mjög þægilegt fyrir Íslendinga á ferðinni sem geta stillt á rétta stöð á hótelherberginu sínu til að fylgjast með.
Á vefsíðunni þarf að breyta um land uppi hægra megin til að fá rétta sjónvarpsstöð.
Frekari upplýsingar um RÚV smáforritið
Vefsíðan sem Árni Torfason setti upp
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!



