Fotbolti.net
10.07.26 - 10:39
Fótbolti.net

Maður dagsins á HM - Gerði allt til að reyna að fá hann til Liverpool

Klopp og Mbappe.

Klopp og Mbappe.

Canon

Mynd: EPA

Leikmaður dagsins
Kylian Mbappe var besti leikmaður vallarins er Frakkland lagði Marokkó að velli í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í gærkvöldi.

Mbappe skoraði annað markanna í 2-0 sigri og er kominn með 8 mörk í 6 leikjum á heimsmeistaramótinu. Hann er því í heildina kominn með 20 mörk í 20 leikjum á lokamóti HM, aðeins 27 ára gamall.

Frakkar mæta annað hvort Spáni eða Belgíu í undanúrslitum.
HM: Þægilegt fyrir Frakkland gegn Marokkó
TENGT EFNI

HM: Þægilegt fyrir Frakkland gegn Marokkó

„Það er ennþá langt í úrslitaleikinn. Við vitum að næstu leikir verða erfiðari en þessir sem við höfum spilað hingað til. Við erum tilbúnir í hvað sem kemur næst," sagði Mbappé eftir lokaflautið.

„Þetta er ekki sterkasta franska landsliðið en þetta er það efnilegasta. Bestu liðin eru þau sem fara alla leið og sigra!"

Mbappe var skipt af velli á 77. mínútu eftir að hann var tæklaður nokkuð harkalega, en hann segist ekki vera meiddur.

Svo fór hann til Parísar
Eftir leikinn í gær fór vel á með Mbappe og Jurgen Klopp, fyrrum stjóra Liverpool. Klopp er að störfum á HM fyrir sjónvarpsveituna Magenta TV þar sem hann sagði frá því hvernig hann lagði allt kapp á að fá Mbappe til Liverpool áður en hann skrifaði undir hjá Paris Saint-Germain 2017.

Klopp segir að Liverpool hafi aldrei eitt eins miklum peningi í leikmann sem ekki hafi komið til félagsins. Send var einkaþota eftir Mbappe og fjölskyldu hans.

„Við gerðum allt sem við gátum. Við flugum í hringi, spjölluðum við fjölskylduna, borðuðum góðan mat. Svo fór hann til Parísar," segir Klopp.

Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Maður dagsins á HM - Gerði allt til að reyna að fá hann til Liverpool
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.