26.08.26 - 13:22
Elvar Geir Magnússon
Man Utd braut treyjureglur í tapleiknum gegn Hull

Bruno Fernandes í treyjunni sem ekki stóðst reglur.

Mynd: EPA

Enska úrvalsdeildin hefur bent Manchester United á að félagið hafi brotið treyjureglur í tapinu gegn Hull í fyrstu umferð deildarinnar.
Manchester United er ekki með auglýsingu á erminni eftir að samningur við DXC Technology rann út. Þau félög sem eru ekki með styrktaraðila á erminni þurfa samkvæmt reglum að vera með merki ensku úrvalsdeildarinnar á báðum ermum.

TENGT EFNI
England: Martraðarbyrjun hjá Man Utd
Í leiknum gegn Hull voru treyjur United með umrætt merki á hægri erminni en ekki á þeirri vinstri. Daily Mail segir að enska úrvalsdeildin hafi gefið félaginu vinsamlega ábendingu um að bæta úr þessu.
Samkvæmt frétt blaðsins verður Manchester United með merki deildarinnar á báðum ermum gegn Ipswich á sunnudag. Félagið er að leita að nýjum styrktaraðila til að auglýsa á erminni.

Merki deildarinnar var aðeins á hægri erminni en þarf að vera á báðum.

Mynd: EPA