Fotbolti.net
25.08.26 - 15:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Baleba til Man Utd (Staðfest)

Baleba til Man Utd (Staðfest)
Canon

Mynd: Manchester United

Carlos Baleba er genginn í raðir Manchester United sem kaupir hann á 70 (65+5) milljónir punda frá Brighton. Baleba skrifar undir samning sem gildir til sumarsins 2031.

Baleba er 22 ára miðjumaður frá Kamerún sem United hefur haft augastað á síðustu misseri.

Hann er þriðji miðjumaðurinn sem United kaupir í sumar því fyrr í sumar kom Youri Tielemans frá Aston Villa og Andrey Santos frá Chelsea.
Rooney mjög hrifinn af kaupunum á Baleba
TENGT EFNI

Rooney mjög hrifinn af kaupunum á Baleba

,Það er ótrúleg tilfinning að ganga til liðs við draumafélagið mitt. Að spila á Old Trafford er alltaf sérstakt en tækifærið til að gera það sem leikmaður Manchester United verður sannur heiður."

„Ég get ekki beðið eftir að vinna með Michael Carrick; reynsla hans og þekking á leiknum gerir hann að fullkomnum þjálfara til að hjálpa mér að ná hæsta stigi."

„Metnaður allra hjá félaginu er afar skýr, framtíðin er gríðarlega spennandi og ég er staðráðinn í að leggja mitt af mörkum til að skila þeim árangri sem við erum fær um að ná saman,"
segir Baleba við undirskrift.


Baleba til Man Utd (Staðfest)
Canon

Mynd: Manchester United

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.