Fotbolti.net
26.08.26 - 10:12
Elvar Geir Magnússon
Ítalski boltinn

Grabara til Juve og Perin til Palermo (Staðfest)

Kamil Grabara.

Kamil Grabara.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Markvörðurinn Kamil Grabara er kominn til Juventus á lánssamningi frá Wolfsburg sem gildir út tímabilið. Juve er með forkaupsrétt á leikmanninum.

Grabara er 27 ára gamall Pólverji. Hann skrifaði undir samning við Liverpool árið 2016 en spilaði ekki leik fyrir liðið. Hann gekk til liðs við FC Kaupmannahöfn árið 2021 og gekk síðan til liðs við Wolfsburg árið 2024 þar sem hann hefur verið aðalmarkvörður tvö síðustu tímabill. Hann á tvo Danmerkurmeistaratitla á ferilskránni
Vicario fór meiddur af velli og varamarkvörðurinn á förum
TENGT EFNI

Vicario fór meiddur af velli og varamarkvörðurinn á förum

Það eru miklar breytingar á markvarðateymi Juventus en félagið fékk til sín Guglielmo Vicario frá Tottenham til að vera aðalmarkvörður. Michele Di Gregorio sem var aðalmarkvörður Juve gerði nokkur dýrkeypt mistök á síðasta tímabili en hann er farinn til Bournemouth.

Þá hefur Mattia Perin, sem var varmarkvörður, verið seldur til B-deildarfélagsins Palermo en það var staðfest í morgun.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.