Fotbolti.net
10.08.20 - 13:30
Elvar Geir Magnússon

Real Madrid tekur ákvörðun um Ödegaard í þessari viku

Ödegaard er norskur landsliðsmaður.

Ödegaard er norskur landsliðsmaður.

Canon

Mynd: Getty Images

Marca segir að Real Madrid muni í þessari viku taka ákvörðun um framtíð Martin Ödegaard.

Norðmaðurinn var á láni hjá Real Sociedad á liðnu tímabili og félögin gerðu samkomulag um að lánsdvölin yrði í tvö tímabil.

Nú er talið að menn hjá Real Madrid vilji fá Ödegaard í leikmannahóp liðsins fyrir næsta tímabil.
Ödegaard skoraði sjö mörk fyrir Real Sociedad á liðnu tímabili.

Talið er að Real Madrid hugsi hann sem framtíðararftaka Luka Modric á miðjunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.