05.10.26 - 14:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Verði að hugsa „hvernig létum við þetta gerast?"

Úr leik Vals og Víkings fyrr á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Liðin tvö sem féllu.

„Þegar maður pælir í því, þá er þetta bara rosalegt," sagði Arnar Páll Garðarsson í Uppbótartímanum í gær þegar rætt var um fall Víkings og Vals úr Bestu deild kvenna.
Þetta eru stór félög á Íslandi; Víkingar eru Íslandsmeistarar í karlaflokki og kvennaliðið varð bikarmeistari fyrir örfáum árum á meðan Valur hefur verið eitt besta lið landsins í karla- og kvennaflokki í fjöldamörg ár. Fyrir mótið var Víkingum spáð þriðja sæti á meðan Val var spáð sjötta sæti eftir miklar breytingar.
„Að Valur og Víkingur séu fallin í 1. deild, að Valur sé að falla í fyrsta skipti og Víkingur sé að falla eftir bikarmeistaratitil og eftir að hafa endað í efri hlutanum í fyrra og verið á uppleið, þá er þetta hálf ótrúlegt. Þótt að það sé auðvelt að skella skuldinni á þjálfara og leikmenn, þá held ég að fólkið í kringum liðin verði líka að hugsa 'hvernig létum við þetta gerast?'" sagði Arnar Páll jafnframt.
Í lokaumferðinni vann Valur 1-2 sigur á Fram og var á tímapunkti að halda sér uppi en Þór/KA náði að vinna 0-2 sigur í Víkinni og sendi bæði Reykjavíkurliðin niður.
„Fyrir þennan leik fannst mér mistökin hjá Víkingi hvernig þær fóru inn í Valsleikinn. Mögulega sendirðu einhver skilaboð með því að fara ótrúlega passív og hrædd inn í Valsleikinn, kannski smitaði það inn í þennan leik," sagði Arnar. „Þær þurfa að fara virkilega vel yfir hvað gekk á þetta tímabilið og af hverju þetta endar svona. Það er galið að Víkingur sé að falla."
Alla umræðuna má hlusta á í spilaranum hér fyrir neðan.