Ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks spila í kvöld fyrri leik sinn gegn sænska félaginu Häcken í átta-liða úrslitum Evrópubikarsins.
Breiðablik vann ótrúlegan sigur í einvígi sínu gegn danska félaginu Fortuna Hjörring á síðasta stigi keppninnar.
Breiðablik vann ótrúlegan sigur í einvígi sínu gegn danska félaginu Fortuna Hjörring á síðasta stigi keppninnar.
Það var í nóvember á síðasta ári en síðan þá hafa miklar breytingar átt sér stað hjá Blikum. Nýtt þjálfarateymi er tekið við keflinu og miklar breytingar hafa jafnframt orðið á leikmannahópnum.
Leikurinn í kvöld hefst 17:30 en seinni leikurinn verður svo í Kópavogi eftir viku.
Í liði Häcken eru tveir íslenskir leikmenn, þær Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir.
Athugasemdir

