Fotbolti.net
11.02.26 - 14:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Stuðningsmenn West Ham eflaust ánægðir með Carrick

Stuðningsmenn West Ham eflaust ánægðir með Carrick
Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick, bráðabirgðastjóri Manchester United, var ekki sáttur við að vinna ekki West Ham í gær. Man Utd jafnaði leikinn undir lokin eftir að heimamenn i West Ham komust yfir.

Carrick segir að sitt lið hafi ekki verið upp á sitt besta í leiknum en hann var sáttur við að liðið hans fann leið til að jafna leikinn.
England: Sigurgöngu Carrick lokið - Engin klipping
TENGT EFNI

England: Sigurgöngu Carrick lokið - Engin klipping

„Við höfum verið að spila vel, þetta er erfiður völlur að koma á, þeir eru erfiðir og við vorum ekki nægilega skarpir. Hrós á strákana í lokin að skora aftur mark seint í leiknum þegar við þurftum á því að halda. Það eru mikil gæðamerki að geta það. Við tökum stigið og höldum áfram," segir Carrick.

„Frábær afgreiðsla hjá Sesko, hann gerði þetta aftur (að skora seint). Við hentum öllu sem við áttum í þá, hefðum reyndar getað sett fleiri bolta inn á teiginn finnst mér. Josh(ua Zirzkee) átti tilraun sem fór rétt framhjá og Benji (Benjamin Sesko) jafnaði með frábæru marki, annað stórt mark frá honum."

Carrick er uppalinn hjá West Ham, fór þaðan til Tottenham og svo til Man Utd þar sem hann var á árunum 2006-18. West Ham er í fallsæti en hefur spilað vel að undanförnu. Carrick vonar að liðið haldi sér uppi.

„Núna erum við búnir með þá, ég myndi elska ef þeir myndu halda sér uppi. Félagið var stór hluti af lífi mínu þegar ég var að alast upp, ég á frábærar minningar héðan svo vonandi halda þeir sér uppi," sagði Carrick.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.