Manchester City vann mikilvægan sigur gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Þeir minnkuðu þannig forskot Arsenal á toppi deildarinnar í þrjú stig. Arsenal á erfiðan útileik framundan á morgun gegn Brentford.
City gekk frá leiknum gegn Fulham í fyrri hálfleik þar sem Antoine Semenyo, Nico O'Reilly og Erling Haaland skoruðu þrjú mörk á 15 mínútna kafla.
City gekk frá leiknum gegn Fulham í fyrri hálfleik þar sem Antoine Semenyo, Nico O'Reilly og Erling Haaland skoruðu þrjú mörk á 15 mínútna kafla.
Fulham var aldrei líklegt til að komast aftur inn í leikinn og þægilegur sigur City staðreynd.
City hélt titilbaráttunni á lífi með sigri gegn Liverpool síðastliðið sunnudagskvöld og núna er boltinn hjá Arsenal. Fulham er í tólfta sæti deildarinnar.
Það fóru þrír aðrir leikir fram á sama tíma. Aston Villa hefur hikstað að undanförnu og á löngum köflum litu þeir ekki vel út gegn Brighton í kvöld. Þeim tókst hins vegar að skora sigurmarkið undir lokin og var þar að verki Tyrone Mings eftir hornspyrnu.
Þessi þrjú stig eru afar mikilvæg fyrir Aston Villa í baráttunni um Meistaradeildarsæti, styrkir stöðu þeirra töluvert. Brighton er í 14. sæti.
Ótrúlegur viðsnúningur og banabiti Dyche?
Í London var ótrúlegur leikur þar sem Crystal Palace missti frá sér tveggja marka forystu gegn Burnley af öllum liðum. Andinn í kringum Palace er alls ekki góður þessa dagana.
Jörgen Strand Larsen, sem var keyptur frá Wolves á dögunum, skoraði tvö mörk í fyrri hálfleiknum - það seinna eftir rúmlega hálftíma leik - en á einhvern ótrúlegan hátt var staðan orðin 2-3 fyrir Burnley þegar flautað var til hálfleiks.
Hræðileg úrslit fyrir Palace miðað við þá stöðu sem þeir voru komnir í. Palace er í 13. sæti en Burnley er í næst neðsta sæti og er núna níu stigum frá öruggu sæti.
Þá spyrja menn sig núna hvort að Sean Dyche muni mögulega missa starf sitt sem stjóri Nottingham Forest eftir markalaust jafntefli gegn botnliði Wolves í kvöld. Forest var mun betra liðið í leiknum en tókst ekki að skora. Forest er í bullandi fallbaráttu, bara þremur stigum frá fallsvæðinu, og það er eitthvað sem eigandinn Evangelos Marinakis er ekki sáttur við. Kemur yfirlýsing frá Forest í fyrramálið?
Aston Villa 1 - 0 Brighton
1-0 Tyrone Mings ('87 )
Manchester City 3 - 0 Fulham
1-0 Antoine Semenyo ('24 )
2-0 Nico OReilly ('30 )
3-0 Erling Haaland ('39 )
Nott. Forest 0 - 0 Wolves
Crystal Palace 2 - 3 Burnley
1-0 Jorgen Strand Larsen ('17 )
2-0 Jorgen Strand Larsen ('33 )
2-1 Hannibal ('40 )
2-2 Jaidon Anthony ('44 )
2-3 Jefferson Lerma ('45 , sjálfsmark)
Athugasemdir




