Fotbolti.net
25.10.26 - 17:07
Brynjar Ingi Erluson

Guðlaugur Victor með stoðsendingu í sigri - Annað jafnteflið í röð hjá Hákoni

Gulli Victor var með stoðsendingu gegn botnliðinu

Gulli Victor var með stoðsendingu gegn botnliðinu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Guðlaugur Victor Pálsson lagði upp mark í 5-1 stórsigri Horsens á SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í dag.
Varnarmaðurinn lagði upp þriðja mark Horsens undir lok fyrri hálfleiks, en þetta var önnur stoðsending hans á tímabilinu.

Brynjar Ingi Bjarnason kom inn á hjá SönderjyskE í hálfleik, en liðið fékk á sig tvö mörk til viðbótar áður en flautað var til leiksloka. Horsens situr í sjötta sæti með 16 stig en SönderjyskE er á botni deildarinnar með átta stig.

Tómas Bent Magnússon var í byrjunarliði Hearts sem vann 2-0 sigur á Motherwell.

Eyþór Martin Björgólfsson kom inn af bekknum hjá Motherwell sem hefur ekki unnið leik síðan í byrjun september.

Hearts er í þriðja sæti með 19 stig en Motherwell situr í tíunda sæti með átta stig.

Arnór Sigurðsson lék allan leikinn hjá Kalamata sem steinlá 5-0 gegn Olympiakos í grísku úrvalsdeildinni. Olympiakos er á toppnum með 19 stig en nýliðar Kalamata sitja í sjöunda sæti með tíu stig.

Hákon Arnar Haraldsson var að venju í byrjunarliði Lille sem gerði jafntefli annan deildarleikinn í röð þegar liðið heimsótti Mónakó.

Leiknum lauk með 1-1 jafntefli og lék Hákon í 80 mínútur, en Lille þurfti að spila manni færri frá 66. mínútu eftir að varnarmaðurinn Tanguy Nianzou fékk að líta rauða spjaldið.

Lille hefur nú ekki unnið í síðustu tveimur deildarleikjum en er þrátt fyrir það í öðru sæti deildarinnar með 15 stig.
Hákon Arnar byrjaði í jafntefli gegn Mónakó

Hákon Arnar byrjaði í jafntefli gegn Mónakó

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.