Fotbolti.net
11.02.26 - 13:50
Elvar Geir Magnússon

Frank með Arsenal á heilanum - Tekur hann við Palace í sumar?

Thomas Frank með Arsenal kaffimál.

Thomas Frank með Arsenal kaffimál.

Canon

Mynd: Twitter

Thomas Frank var í morgun rekinn sem stjóri Tottenham, eftir aðeins tæplega átta mánuði í starfi. Tottenham er í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, aðeins fimm stigum frá fallsvæðinu.

The Telegraph segir að Frank hafi verið með Arsenal á heilanum og í sífellu verið að tala um liðið við leikmenn sína. Þeir hafi fljótt fengið leið á því.

Sagt er að fyrir og eftir tapleik Spurs á Emirates í nóvember hafi Frank talað endalaust um hversu gott lið Arsenal væri. Leikmenn hefðu talað um það innbyrðis að þeir vildu óska þess að hann myndi „halda kjafti“ varðandi Arsenal.

Athygli vakti í janúar þegar Frank hélt á Arsenal kaffimáli fyrir leik hjá Tottenham gegn Bournemouth.
Óheppileg mistök Frank sem var myndaður með Arsenal kaffimál
TENGT EFNI

Óheppileg mistök Frank sem var myndaður með Arsenal kaffimál

Líklegastur sem næsti stjóri Palace
Veðbankar eru komnir með Frank efstan á blað yfir þá líklegustu til að taka við Crystal Palace eftir að Tottenham lét hann fara í morgun.

Oliver Glasner hefur þegar tilkynnt að hann yfirgefur Palace þegar samningur hans rennur út eftir tímabilið. Glasner er einn af mörgum sem gætu komið til greina hjá Tottenham.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.