Fotbolti.net
11.02.26 - 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jói útherji

Plana enn framtíðina án Rashford

Marcus Rashford.

Marcus Rashford.

Canon

Mynd: EPA

Manchester United er áfram að plana það að Marcus Rashford yfirgefi félagið í sumar.

Rashford er á láni hjá Barcelona og hefur spilað þar vel. Upp á síðkastið hafa komið fréttir um það að Rashford muni mögulega snúa aftur til United eftir að Rúben Amorim var rekinn. Michael Carrick hefur staðið sig mjög vel eftir að hann tók við Man Utd og hann er sagður aðdáandi Rashford.
Núna segir The Sun hins vegar frá því að Man Utd sé enn að plana það að Rashford fari.

Barcelona getur keypt Rashford í sumar á 26 milljónir punda en það er spurning hvort Katalóníustórveldið hafi nægt fjármagn til að ganga frá þeim kaupum. Fjárhagsvandræði Barcelona hafa verið mikið til umfjöllunar á síðustu árum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.