Fotbolti.net
11.02.26 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Slot: Þá verða mennirnir sem eru ekki að spila bestu menn hópsins

Calvin Ramsay í baráttunni við Árna Vilhjálmsson í leik gegn Breiðabliki í forkeppni Sambandsdeildarinnar sumarið 2021.

Calvin Ramsay í baráttunni við Árna Vilhjálmsson í leik gegn Breiðabliki í forkeppni Sambandsdeildarinnar sumarið 2021.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arne Slot, stjóri Liverpool, var á fréttamannafundi í gær spurður út í bakvörðinn Calvin Ramsay. Ramsay gekk í raðir Liverpool árið 2022 frá Aberdeen en hefur til þessa ekki spilað í úrvalsdeildinni.

Liverpool er í hægri bakvarða hallæri. Jeremie Frimpong og Conor Bradley glíma við meiðsli og Dominik Szoboszlai tekur út leikbann í kvöld gegn Sunderland.

Joe Gomez og Curtis Jones þykja líklegustu kostirnir til að leysa stöðuna í kvöld, en Gomez hafði reyndar ekki æft með liðinu þegar Slot sat fyrir svörum í gær.

„Ég býst við því að hann æfi í fyrsta sinn með okkur í dag. Ef Joe er ekki klár þá erum við án fjögurra leikmanna sem hafa spilað þessa stöðu. En Curtis (Jones) og Wata (Endo) hafa einnig leyst stöðuna."
Hver verður í hægri bakverði hjá Liverpool? - Langerfiðasta tímabil Slot
TENGT EFNI

Hver verður í hægri bakverði hjá Liverpool? - Langerfiðasta tímabil Slot

Slot var spurður út í Ramsay en hann ætlar ekki að leita til hans fyrir leikinn.

„Heilt yfir þá er það þannig að þegar þú vinnur ekki leiki þá verða leikmennirnir sem eru ekki að spila bestu leikmenn hópsins. Þetta er eins alls staðar í heiminum. Þetta tilvik er dæmi um það. Ég vil vernda alla mína leikmenn. Ég hef valið aðra leikmenn til þessa og það mun ég líka gera á morgun (í kvöld)," sagði Slot og vísar þá til þeirra sem gagnrýna liðsval þjálfara og stjóra út um allan heim.

Ramsay er fæddur árið 2003 og hefur verið lánaður til Preston, Bolton, Wigan og Kilmarnock síðustu ár.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.