11.06.25 - 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Völdu úrvalslið Bestu deildarinnar hingað til

Patrick Pedersen, besti leikmaðurinn hingað til.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daði Berg Jónsson, besti ungi leikmaðurinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Patrick Pedersen, besti leikmaðurinn hingað til.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Besta deildin er ekki alveg hálfnuð en þeir í útvarpsþættinum Fótbolti.net tóku sig til og völdu úrvalslið deildarinnar hingað til í þættinum síðasta laugardag.
Úr mynduðust skemmtilegar umræður en valið er alls ekki auðvelt. Svona endaði það:
Úr mynduðust skemmtilegar umræður en valið er alls ekki auðvelt. Svona endaði það:

Vestri, spútniklið deildarinnar, á flesta fulltrúa í liðinu eða fimm talsins. Víkingur á tvo, Valur á tvo, Breiðablik á einn og KR á einn.
Besti leikmaðurinn: Patrick Pedersen (Valur)
Besti ungi leikmaðurinn: Daði Berg Jónsson (Vestri)
„Ég ætla ekki að hlusta á neitt annað," sagði Valur Gunnarsson þegar þeir ræddu um besta leikmanninn hingað til, Patrick Pedersen. „Við erum farnir að taka honum sem sjálfsögðum hlut. Við horfum á mann sem er að skora í sjö af tíu leikjum og er með níu mörk í tíu leikjum fyrir Val."
Patrick mun líklega í sumar bæta markametið í efstu deild en næsti leikur hans verður sá 200. fyrir Val.

Daði Berg Jónsson, besti ungi leikmaðurinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
