Ítalska félagið Como, sem mun spila í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn á næstu leiktíð, heur náð samkomulagi við Borussia Dortmund um að fá brasilíska bakvörðinn Yan Couto á láni út tímabilið.
Cesc Fabregas tókst hið ótrúlega að koma Como í Meistaradeildina og nú vinnur hann hörðum höndum að því að styrkja hópinn fyrir komandi átök.
Hann er að fá til sín hægri bakvörðinn Couto á láni frá Dortmund, en Como greiðir laun hans á meðan lánsdvölinni stendur.
Couto er 24 ára gamall og var áður á mála hjá Manchester City áður en hann gekk í raðir Dortmund á síðasta ári. Hann á þrjá landsleiki fyrir Brasilíu.
Como er einnig að ganga frá kaupum á vinstri bakverðinum Kaiki frá Cruzeiro og greiðir um 14 milljónir evra fyrir hann.
Brasilískur vængjabolti hjá Como sem mun styrkja hópinn enn frekar þegar líður á sumargluggann.




