Fotbolti.net
11.10.26 - 17:00
Brynjar Ingi Erluson

Moyes: Spiluðum langt undir getu

Moyes: Spiluðum langt undir getu
Canon

Mynd: EPA

David Moyes, stjóri Everton, var svekktur út í sína menn og frammistöðu þeirra í 2-2 jafnteflinu gegn Hull City í ensku úrvalsdeildinni í dag.
England: Samba-bolti hjá Palace - Everton áfram taplaust
TENGT EFNI

England: Samba-bolti hjá Palace - Everton áfram taplaust

Moyes fannst leikmenn spila undir getu gegn Hull eftir að hafa spilað frábærlega síðustu vikur.

Hann sagði liðið ekki hafa verið upp á sitt besta.

„Ég var mjög pirraður yfir getustiginu. Þetta var langt undir því sem við höfum verið að gera undanfarið og svo er ég líka vonsvikinn að þegar við komumst í 2-1 þá var ég viss um að við myndum loka þessum leik. Nokkur varnarmistök hjálpuðu ekki og síðan klúðruðum við mörgum færum sem hefði getað gert þetta auðveldara fyrir okkur,“ sagði Moyes.

Mark var tekið af Brennan Johnson í fyrri hálfleiknum vegna rangstöðu, en Moyes vonar að mennirnir í VAR-herberginu hafi teiknað línurnar rétt.

„Mér finnst við eiga skot þarna og það getur verið að hann hafi verið rangstæður í því skoti sem er síðan varist og svo skoraði hann úr frákastinu. Ég get alveg tekið því, en ég bara veit bara ekki hvort hællinn á markverðinum gerir hann réttstæðan. Ég vona að þeir hafi teiknað línurnar og gert það rétt.“

Þá talaði hann um pirring sinn í garð leikmanna í hálfleik. Hann var ánægður með viðbrögðin við fyrra marki Hull.

„Við vorum pirraðir út í leikmenn í hálfleik miðað við hvernig þeir spiluðu í fyrri hálfleik þannig við vorum að búast við góðri byrjun á síðari hálfleiknum, en við hittum ekki boltann og svo skora þeir. Það þýddi að við þurfum að finna leið aftur inn í leikinn sem við gerðum og það nokkuð verðskuldað.“

„Þegar allt kemur til alls þá ættum við ekki að vera of vonsviknir með að fara með stig héðan þegar þú horfir á úrslitin sem Hull náði gegn Manchester United og Aston Villa. Þeir eru að byggja eitthvað hérna.“

„En eins og ég segi þegar við komumst í 2-1 þá hélt ég að við myndum vinna þennan leik,“
sagði Moyes.
Moyes: Spiluðum langt undir getu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.