Fotbolti.net
11.10.26 - 16:17
Snæbjört Pálsdóttir

Guðrún hefur engar áhyggjur þótt Ísland sæki á mörgum mönnum

Auglýsing
Guðrún Arnardóttir segir íslenska liðið hafa lagt mikla áherslu á varnarjafnvægið þrátt fyrir sókndjarft leikskipulag gegn Króatíu og vonast til að liðið nái að stýra leiknum á sama hátt á þriðjudaginn.

Guðrún Arnardóttir segir íslenska liðið hafa lagt mikla áherslu á varnarjafnvægið þrátt fyrir sókndjarft leikskipulag gegn Króatíu og vonast til að liðið nái að stýra leiknum á sama hátt á þriðjudaginn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennalandslið

Landsliðskonan Guðrún Arnardóttir, segir íslenska liðið hafa lagt mikla áherslu á að halda góðu varnarjafnvægi þrátt fyrir sókndjarft leikskipulag gegn Króatíu á föstudaginn.

Ísland vann sannfærandi 4-0 sigur í fyrri leik þjóðanna í umspili um sæti á heimsmeistaramótinu. Íslenska liðið var mikið með boltann og bakverðirnir fóru oft hátt upp völlinn.

Guðrún segir hreyfingarnar í sóknarleiknum hafa skapað vandamál fyrir króatíska liðið.

„Þetta er náttúrulega öðruvísi færslur en það gefur okkur líka þessa dýnamík í sóknarleiknum, að við séum ekki bara fastar í okkar stöðum og fáum þessar hreyfingar.“

„Það er mikill fókus hjá okkur á að vera alltaf með rest defence, ef við slettum nú almennilega, og að við fyllum völlinn vel þegar við erum að sækja, til þess að verjast ef við töpum boltanum.“

„Þetta er bara eitthvað sem er farið í líka og maður hefur engar áhyggjur þó að við séum að henda mönnum fram.“

Guðrún var heilt yfir ánægð með frammistöðu Íslands í fyrri leiknum en segir þó ýmislegt sem megi bæta.

„Mér fannst við vera með kontroll á leiknum allan leikinn og vera dominant í leiknum. Þær fengu samt alveg tvo sénsa til að skora og það er eitthvað sem við þurfum að skerpa á.“

Hún telur einnig að vallaraðstæður í Króatíu hafi haft áhrif á hraðann í sóknarleiknum.

„Völlurinn fannst mér alveg svolítið erfiður. Við enduðum kannski stundum á að vera svolítið hægar í að skipta á milli kanta og taka boltann fram á við.“

Guðrún vonast til að það gangi betur á Laugardalsvelli á þriðjudaginn en segir íslenska liðið stefna að svipaðri leikmynd og í fyrri viðureigninni.

„Ég ætla ekki að fara að uppljóstra neinu en ég held að markmiðið sé að þetta verði svolítið sama leikmynd, að við séum mikið með boltann og séum að stýra leiknum.“

Ísland fer inn í seinni leikinn með fjögurra marka forskot en Guðrún býst við að Króatar geti gert breytingar á sínum leik og segir íslenska liðið undirbúa sig fyrir það.

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.