11.10.26 - 17:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Man City vann tíu leikmenn Liverpool

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Liverpool 0 - 3 Manchester City
0-1 Erling Haaland ('65 )
0-2 Jeremy Doku ('68 )
0-3 Rayan Cherki ('78 )
Rautt spjald: Ryan Gravenberch, Liverpool ('62)

Man City fór illa með Liverpool á Anfield í kvöld. Það var mikil eftirvænting fyrir leiknum þar sem þetta var fyrsti leikurinn eftir að Man City var fundið sekt um alvarlega fjárlagabrot.
Stuðningsmenn Liverpool létu vel í sér heyra á fyrstu mínútum og bauluðu hressilega.
Fyrri hálfleikur var nokkuð tíðindalítill en það sauð aðeins upp úr eftir tíu mínútna leik þegar hinn ungi Lewis Koumas og Ruben Días tókust á og fleiri bættust við í kjölfarið.
Erling Haaland komst í færi eftir klukkutíma leik en Alisson kom út á móti og Haaland skaut framhjá.
Það dró til tíðinda stuttu síðar þegar Ryan Gravenberch var rekinn af velli þegar hann fékk sitt annað gula spjald fyrir brot á Jeremy Doku.
Þremur mínútum síðar náði Man City forystunni þegar Haaland skoraði með skoti úr teignum. City hélt áfram að hamra járnið og Jeremy Doku bætti öðru markinu við stuttu síðar.
Það var síðan Rayan Cherki sem innsiglaði sigur City. City er á toppnum með 18 stig en Liverpool er í 9. sæti með 9 stig.